Dagurinn í dag fór í að versla… kíktum í 2 tölvubúðir. Hjalti keypti sér loksins móðurborðið sem honum langaði í. Við fórum svo líka aðeins í Best Buy og svo í Wal-Mart svo ég gæti keypt ofnæmislyfin mín… og svona eitt og annað sem mig vantaði. Kannski það merkilegasta sem við gerðum í dag var að við bættum við enn einu fylkinu því búðin sem Hjalti þurfti að fara í var í New Hampshire.
Við fórum svo út að borða á Longhorn Steakhouse sem að Óli og strákarnig sem voru í Usa í Júní voru búnir að mæla með. Alveg ágætisstaður… allavega ekkert til að kvarta yfir, fínn matur og ennþá betra verð. Kvöldinu eyddum við svo bara í að gera mest lítið. Klárað að pakka og gera allt ready fyrir morgundaginn.
Er virkilega búið að klára að versla?
Comment af mamma — júlí 25, 2007 @ 12:22 pm