Við byrjuðum daginn á því að keyra yfir Missisippi fljót… það er svooo stórt.. en já.. keyrðum beinustu leið á Elvis Presley Blvd. Já já.. við fórum að skoða Graceland í dag
Þetta var alveg ótrúleg upplifun!! Húsið sjálft ber ekki mikið á sér þegar það er séð að utan, en þegar maður kemur inn þá er það alveg ótrúlega stórt. Og maður fær ekki einu sinni að sjá það allt, því eftir hæðin er lokuð fyrir almennan aðgang, en þar er svefnherbergi Elvis og því hefur verið haldið alveg eins og það var þegar hann var á lífi. En núna í ágúst eru 30 ár frá því hann dó og ef hann væri á lífi í dag þá væri hann 72ja ára gamall.
Við tókum alveg slatta af myndum inni í húsinu en þær komu ekkert of vel út því það er alveg harðbannað að nota Flassið.
Lóðin sjálf er um 14 Ekrur og þar er Elvis, foreldrar hans og amma jörðuð. Þar er líka minningar”gröf” um tvíburabróður Elvis sem lést við fæðingu. En hann hét Jessie Garon Presley. Það var alveg sérstök stemmning að labba þarna framhjá.. fólk svona hvíslaði sín á milli og sagði sem minnst meðan það fór þarna framhjá.
Síðan fengum við líka að skoða bílasafnið hans… og váá hvað hann átti flotta bíla, meina hverjum langar ekki í bleikan eða fjólubláan bíl
Og hann átti líka alveg slatta af mótorhjólum, jábbs.. slatta!!!
Síðan fengum við líka að skoða flugvélina hans sem heitir Lisa Marie, eftir dóttur hans.
Síðan var bara keyrt og keyrt… við komum við í Nashville í tölvubúð sem Hjalti vildi fara í til að kaupa tölvudót sem var svo ekki til ! Þannig við héldum bara áfram að keyra… og gaman að segja frá því að við loksins loksins fórum á nýjan veg… haha já ykkur finnst það kannski ekki merkilegt en þegar maður er búinn að keyra sama veginn í að verða 4 daga þá er það mjög gaman! Við erum semsé núna komin á veg sem heitir I 81 N. Og erum stödd svona á milli Knoxville og Bristol.

Einhvernveginn var ég búin að ímynda mér að það tæki lengri tíma að keyra þetta allt.. mér finnst þið vera búin að vera ótrúlega fljót..
Hvaðan fljúgiði svo heim?? aftur frá Boston eða???
Comment af Lilja og Elísa — júlí 20, 2007 @ 9:38 am
Hæ var að lesa núna frá því í Las Vegas, sem mér sýnist nú bara búinn að vera hápunkturinn á ferðinni, þangað til kemur að pönnunni(!)
Bíð spennt eftir henni!
Gangi ykkur vel og passið að hafa nú rusl og aðalpokann aðeins ólíkari, ég fékk bara kvíðakast fyrir ykkar hönd þegar ég las þetta.
Hjúkk að þetta fannst.
Sjáumst.
Comment af Kristrún E. — júlí 20, 2007 @ 8:14 pm
Já við fljúgum heim frá Boston… næsta miðvikudag
og úff.. þetta er búið að taka alveg nógu langan tíma að keyra.. haha
Comment af teamawesomeinamerica — júlí 20, 2007 @ 10:22 pm