Team Awesome In America

júlí 25, 2007

Miðvikudagur 25 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 5:43 pm

Samantekt.

Boston: Við erum bæði sammála um að Boston hafði komið virkilega skemmtilega á óvart. Við vorum líka svo heppin að lenda á alveg hreint frábærum guide í svona túristaferð sem sagði svo skemmtilega frá. Þar fórum við líka á Cheers… “Where everybody knows you’re name.”… og já.. sáum Lögguna úr Heroes.

New York: Alveg ótrúlega stór borg og virkar í fyrstu svolítið yfirþyrmandi… en vááá þegar maður aðeins kynnist borginn þá heillar hún alltaf meir og meir. Ásta var algjörlega heilluð og þetta er einn af hápunktum ferðarinnar hjá henni. Við gerðum náttúrulega alveg ótrúlega hluti þarna, fórum upp í Empire State Building og svo í þyrluferð og ekki má gleyma Flugeldasýningunni á 4th of July…með rigningu og öllu tilheyrandi. Fórum í 2 túristaferðir og í annari þeirra var svo fyndinn og skemmtilegur Guide… alveg algjör New Yorker eins og hann sagði sjálfur.

Niagara Falls: Annað váá… miklu miklu stærri en maður hélt. Yfirleitt það sem maður sér á öllum myndum frá fossunum eru þeir sem eru Kanada megin en það eru líka fossar sem eru Ameríku megin og þetta allt saman er bara alveg ótrúlega náttúruperla. Líka gaman að þegar við fórum á Niagara Falls þá fórum við líka til Kanada og fengum stimpil í vegabréfið… Canada Niagara Falls!

Chicago: Stoppuðum eiginlega bara of stutt í Chicago. Okkur langar allavega báðum að kynnast þessari borg betur. Við fórum svo á The Police tónleikana á Wrigley Field sem er heimavöllur The Cups og hefur verið notaður í fjölda kvikmynda. Ótrúleg upplifun að vera á svona stórum tónleikum, en þarna voru yfir 40 þúsund manns.

Mount Rushmore: Alveg hreint ótrúlegt að einhver skuli hafa ákveðið að höggva út þessar styttur þarna lengst upp í fjalli, þarna lengst út í rassgati!!! En já… mjög gaman að hafa séð þetta!

Löng Ökuferð: Tveggja daga ökuferð þar sem við keyrðum í gegnum mjög skemmtilegt landslag, alveg frá grónum skógum og inn í eyðimörkina…

Las Vegas: Lengsta stoppið okkar. Enda mjög mikið að sjá í Vegas. Við gistum á einu af stóru hótelunum… Luxor… pýramídahótelið. Við fórum á ýkt skemmtilega Bítlasýningu með The FabFour, upp í Stratopshere turn í svona “fallturn” eða hvað það heitir og á Uppistand með Jay Leno. Við skoðuðum líka flest öll stærstu hótelin, enda er það bara upplifun fyrir sig. Gaman að sjá hvað hefur verið lagt alveg rosalega mikið í þau. Hjalta fannst þetta vera einn af hápunktum ferðarinnar.

Hoover Dam og Grand Canyon Sky Walk: Einn daginn af þeim sem við vorum í Vegas skelltum við okkur í ökuferð. Við ætluðum nú bara að fara skoða Skywalkið en á leið okkar þangað þá keyrðum við yfir Hoover Dam. Bæði hreint ótrúleg mannvirki. Held ég fái ennþá í magnn af lofthræðslu bara á að hugsa um Skywalkið… enda var glergólf og fólkið sem vinnur þarna skemmtir sér held ég alveg konunglega við að hlæja að fólkinu tipla á tánum þarna. Ljósmyndarinn þar sagði okkur líka frá því að það hefur komið fyrir að fólk hafi skriðið til baka því það hafi fengið svo mikið hræðslukast.

Los Angeles: Það stóð nú helst uppúr að hafa farið í Universal Studios. Auðvitað samt gaman að hafa séð Walk of Fame og Hollywood skiltið. En ekki hægt að segja að Los Angeles hafi verið að heilla mann alveg upp úr skónum. Já eitt sem ég held við höfum ekki sagt ykkur frá… borðuðum á stað sem að Kristrún mældi með.. réttur nr 51.

Ennþá lengri Ökuferð: Vegabréf og Sími sem enduðu í ruslinu og töfðu okkur um alveg hálfan dag og gott betur en það, annars ekki mikið sem gerðist á leiðinni, jú fórum aðeins inn á Route 66.

Graceland: Alveg hreint frábært stopp á degi 3 í “Ennþá lengri Ökuferð” Mér fannst þetta alveg bara fullkomna þessa ferð, því þetta var einn af svona stöðum sem mig hefur lengi lengi langað til að koma á. TCB.

Washington: Já Washington kom bara alveg jafn skemmtilega á óvart og Boston. Ég hafði nú reyndar komið þangað en hafði samt bara ekki hugmynd um hvað borgin hefur uppá mikið að bjóða. Bæði sammála um að þetta sé borg sem er alveg þess virði að fara aftur til. Þó það væri ekki nema bara til að komast yfir að skoða Smitshonian söfnin. Þarna vorum við líka komin aftur í þægilegri hita og bæði sammála um að Austurströndin sé að heilla meira.

Boston Again: Jaa eða svona næstum, gistum rétt fyrir utan Boston, samt bara um 10 mín að fara niður í miðbæ. Gerðum mest lítið, fórum aðeins að versla og svo að borða á Steikhúsi sem að hafði verið mælt með við okkur… og já.. gerðum okkur ready til að halda heim á leið…

En já… hérna eru svo öll Fylkin sem við fórum til… eða keyrðum í gegnum.

Massachusetts – The Bay State

New York – The Empire State

Conneticut – The Constitution State, The Nutmeg State

Pensylvania – Keystone State, Quaker State, Coal State, Oil State

New Jersey – The Garden State

Michigan – The Wolverine State, The Great Lakes State, The Automotive State, Winter Water Wonderland

Indiana – The Hoosier State

Illinois – The Land of Lincoln, The Prairie State

Wisconsin - Badger State, America’s Dairyland

Iowa – The Hawkeye State, The Tall Corn State

South Dakota – The Mount Rushmore State (official), The Sunshine State

Wyoming – The Equality State, Cowboy State

Colorado – the Centennial State

Utah – The Beehive State

Nevada – The Silver State

California – The Golden State

Arizona – The Grand Canyon State / The Cooper State

New Mexico – The Land of Enchantment

Texas – The Lone Star State

Oklahoma – The Sooner State

Arkansas – The Natural State

Tenneessee - Volunteer State

Virginia – old Dominion, Mother of Presidents

Washington DC – DC, The District

Maryland – Old Line State; Free State

New Hampshire – The Granite State

Hérna er svo allt sem við keyrðum… en þetta endaði í rétt rúmlega 8 þúsund mílum… eða  um 12.800 km

júlí 24, 2007

Þriðjudagur 24 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:15 pm

Dagurinn í dag fór í að versla… kíktum í 2 tölvubúðir. Hjalti keypti sér loksins móðurborðið sem honum langaði í. Við fórum svo líka aðeins í Best Buy og svo í Wal-Mart svo ég gæti keypt ofnæmislyfin mín… og svona eitt og annað sem mig vantaði.  Kannski það merkilegasta sem við gerðum í dag var að við bættum við enn einu fylkinu því búðin sem Hjalti þurfti að fara í var í New Hampshire.

Við fórum svo út að borða á Longhorn Steakhouse sem að Óli og strákarnig sem voru í Usa í Júní voru búnir að mæla með. Alveg ágætisstaður… allavega ekkert til að kvarta yfir, fínn matur og ennþá betra verð. Kvöldinu eyddum við svo bara í að gera mest lítið.  Klárað að pakka og gera allt ready fyrir morgundaginn.

júlí 23, 2007

Mánudagur 23 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:10 pm

Stefnan í dag var tekin á Boston… já maður er bara að vera kominn heilan hring. Við vorum samt búin að ákveða að stoppa á einum stað á leiðinni… í Prime Outlets… jei jei jei!!! Það er sama outlet center og er niður í Orlando. Það er alveg ótrúlega gaman að versla þar. Við ætluðum að vera komin þangð um 10 þar sem það er ekkert langt frá Washington en sökum traffíkar þá vorum við ekki komin þangað fyrr en kl 11. Við ákváðum að taka 2ja tíma stopp þar og skiptum liði… og Ásta verslaði og verslaði og verslaði …og verslaði…. og kom til baka ýkt happy með fullt fullt fullt af pokum en Hjalti var ekki með neitt ??? Nema jú.. hann keypti sér 1 bók!!!

Við lögðum af stað kl 1 og GPS tækið sagði okkur að við myndum vera komin kl 15 mín yfir 8 um kvöldið, sem okkur fannst bara ekkert svo slæmt. En neeee það var sko annað eftir að koma á daginn. Þetta blessaða GPS tæki (sem Ásta treystir ekki og er þess vegna með 3 kort) fór með okkur þessa frábæru leið beint í gegnum NY á háannatíma eða kl 17:00 og þar sátum við föst… eða rétt mjökuðumst áfram… og vááá hvað það var leiðinlegt… og til að bæta ástandið og gera þetta ennþá skemmtilegra þá var rigning… og já… Ásta var alveg að pissa á sig! Alveg hreint frábært!

En sem betur fór þá komust við útúr þessu og vorum komin á hótelið rétt fyrir 10… þannig þetta tafði okkur um 1 og hálfan klukkutíma, sem er kannski ekkert svo slæmt. Við pöntuðum okkur svo bara mat á hótelið og slöppuðum af… og sorrý, engar myndir í dag.

Þarna hjá Hagerstown var Outletið… stuttu eftir það byrjaði að rigna og rigndi meira og minna allan tíman.

 

 

 

 

 

 

júlí 22, 2007

Sunnudagur 22 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:15 pm

Í dag fórum við í svona túristaferð, svona hop on hop off, nema við vorum bara ekkert að því. Vorum búin að skoða svo mikið í gær að við bara létum fara vel um okkur á meðan leiðsögumaðurinn sagði okkur frá sögu Washington. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt… miklu miklu meira hérna en maður gerir sér grein fyrir. Alveg endalaust og ég meina endalaust að minnismerkjum um hitt og þetta sem tengist forsetunum, hernum þeirra og bara allt sem þeim dettur í hug held ég… þannig ég segi bara aftur… Ísland.. við verðum að fara taka okkur á.

Seinni partinn kíktum við aðeins í búðir hérna í nágrenninu, en vorum nú ekkert að versla neitt mikið, en samt smá… enda dollarinn í algjöru lámarki. Fórum í Macy’s, loksins Macy’s sem var í svona viðráðanlegri stærð, bara 4 hæðir upp og 1 niður!

Við tókum okkur síðan ágæta hvíld áður en við fórum í kvöldmat. Við höfðum séð Ruby Tuesday í dag og ætluðum að fara þangað… en þegar við komum þá voru bara einhverjar breytingar í gangi þannig við enduðum á einhverjum svona Mexíkóskum stað, hálfgerður skyndibitastaður en alveg ágætur. Við skelltum okkur svo aftur í bíó… haha já svo gott bíó hérna ! Við fórum á “I Now Pronounce You Chuck and Larry”, alveg hreint ágætis mynd, allavega alveg hægt að hlæja að henni.

Veit ég lofaði myndum… og þið fáið myndir… ég er búin að bæta við Washington myndum hérna til hliðar :)

júlí 21, 2007

Laugardagur 21 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:17 pm

Alveg hreint frábær dagur. Við byrjuðum á því að skella okkur á Smithsonian, en það er safn eða söfn sem eru með bara allt sem manni dettur í hug. Þetta er í raun 14 söfn.

1.Donald W. Reynolds Center The Smithsonian American Art Museum and the National Portrait Gallery, 2. National Air and Space Museum, 3. The National Air and Space Museum’s Steven F. Udvar-Hazy Center 4. National Museum of American History, 5. National Museum of Natural History, 6. National Museum of the American Indian, 7. Arthur M. Sackler Gallery/Asian Art, 8. Free Gallery of Art/Asian and American Art, 9. Hirshhorn Museum and Sculpture Garden/Modern Art, 10. National Museum of African Art, 11. Renwick Gallery/American Art, 12. National Postal Museum, 13. Anacostica Community Museum, 14. National Zoological Park.

Ég bara varð að telja þetta allt upp fyrir ykkur… þið kannski gerið ykkur grein fyrir að við komumst ekki að skoða þetta allt, reyndar skoðuðum við bara hluta af þessu. Við fórum á Nr 5, og Nr 2. Við eyddum miklu meiri tíma á Air and Space Museum, enda var það alveg ótrúlegt, ekki annað hægt að segja um það. Þar var t.d. flugvél Wright bræðra!!! og já bara allt sem maður getur hugsað sér að tengist air and space. T.d. alveg farið yfir sögu geymferða, kapphlaupið mikla að komast til tunglsins og svo rosalega mikið um stríð þar sem að flugvélar skiptu miklu máli. Líka gaman að sjá alveg flugvélar frá öllum tímum og sjá líka hvernig þær virka, það var líka allskonar dót út um allt þar sem maður gat prófað allskonar varðandi loft og tækni. Já þetta er sko eitthvað sem maður gæti alveg eitt allavega viku í að fara í gegnum. Á safninu sem við byrjuðum á, svo ég segi ykkur eitthvað frá því, þá var það meira svona um sögu mannkynsins, ótrúlega spennandi, þar voru t.d. steingervingar alveg af risaeðlum og bara öllum fjandanum.. hehe!!! En já.. Air and Space Museum var miklu meira spennandi. Við sáum líka hluta af Nr 9, en bara svona rétt þegar við vorum á röltinu.

Því eftir að hafa eitt dágóðum tíma á safninu, sem var b.t.w. ókeypis inn á, þá röltum við að skoða öll minnismerkin sem eru hérna út um allt, og vááá við Íslendingar ættum að fara taka þetta lið hérna til fyrirmyndar. Alveg spurning að gera svona aðeins meir úr hlutunum… er ekki annars bara einhver ein lítil stytta af Jóni Sigurðssyni niður í bæ??? Já við gætum sko algjörlega gert betur, held það sé engin spurning. En já… við skoðuðum m.a. Washington Monament, minnisvarða um World War II, Lincoln Memorial (þar var mér hugsað til hvað Ísland væri engan vegin að standa sig) og svo auðvitað The White House.

Við skelltum okkur svo líka á Spy Museum… þar mátti ekki taka neinar myndir. Þetta var alveg ágætissafn, maður gat prófað hvað maður yrði góður njósnari, t.d. með að láta reyna á minnið og með að reyna að finna út ákveðna manneskju úr hópi fólks, eftir að manneskjan hafði farið í dulargervi… mjög skemmtilegt. Síðan var verið að segja frá allskonar fólki sem hafði njósnað fyrir Bandaríkin og sem hefur njósnaum um Bandaríkin og fleira í þeim dúr. Þar var líka sagt að Washington væri sú borg þar sem að flestir njósnarar væru í heiminum, veit nú ekki hvað er mikill sannleikur í því.

Eftir það fórum við bara rétt og skiptum um föt og skelltum okkur að borða og svo í bíó á Transformers… og vááá hvað hún var góð!!! Líka ekkert smá gaman að sjá Hoover Dam… eftir að maður er búinn að fara þangað. En já segi bara aftur.. mögnuð mynd.

Já fólk Washington er algjörlega að gera það fyrir okkur hérna, erum bæði algjörlega heilluð af borginni.

Afsakið hvað það er lítið af myndum í dag, en myndavélin var batteríslaus, þannig ég tók bara fullt af myndum með svona einnota myndavél en það verður víst að setja hana í framköllun… en á morgun skal ég hafa minni texta og fleiri myndir :)

 

Og já… þið eruð nú lélegu lélegu kommentararnir.. sérstaklega eftir að ég hafði svona mikið fyrir að setja inn allar myndirnar hérna til hliðar fyrir ykkur!!!

júlí 20, 2007

Föstudagur 20 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:03 pm

Dagurinn í dag byrjaði í rigningu og roki takk fyrir kærlega. Ef ég hefði ekki vitað betur þá hefði ég haldið ég væri heima á Íslandi. En sem betur fer þá stóð þetta ekki lengi og við keyrðum beinustu leið út úr þessu og inn í Sól og Sumaryl aftur. Var líka frekar gaman að keyra í dag, vorum að keyra í gegnum alveg ótrúlega fallegt landslag. Var samt soldið leiðinlegt að þegar við vorum að keyra hjá Bristol þá var alveg brjáluð rigning, annars hefði maður örugglega stoppað allavega í smá stund. En allavega… þá vorum við að keyra mest í gegnum svona fjalllendi og skóga og fallegar ár hér og þar.

 

 

 

Við vorum miklu fljótari til Washington D.C. en við héldum. Við vorum búin að bóka hótel á netinu í gær og þrátt fyrir að við gátum ekki sett adressuna inn í GPS tækið okkar, af einhverri skrítinni ástæðu, þá fundum við þetta ótrúlega fljótt. Við erum á Hóteli á algjörlega lang besta stað í bænum, erum í göngufæri við allt. ALLT!

Kvöldið var alveg með róóólegaasta máti. Við komum á hótelið fyrir kl 5 í dag, hentum inn dótinu okkar, lögðum bílnum í bílageymslu og síðan fórum við að fá okkur að borða. Takið eftir.. við vorum ekkert búin að borða í allan dag.. veit ekki hvað var í gangi sko. En allavega við fórum á Hard Rock Café og vááá hvað það var góður maturinn sem við fengum okkur. Fengum okkur bæði svona kjúkling með Mac and Cheese og Hjalti fékk sér svo LÍKA Fajitas… hann var alveg að deyjar úr hungri grey strákurinn.

En eftir matinn þá ákváðum við bara að fara upp á hótel að slappa af… þá var klukkan 8 hjá okkur !!! Enda búnir að vera soldið þreytandi dagar núna undanfarið, keyra og keyra og skipta um hótel á hverjum degi. Þannig það er alveg ótrúlega nice að vera komin á hótel núna sem við verðum á alveg í 3 daga. Og já svo ég segi ykkur frá herberginu okkar.. ekki það sé eitthvað rosalega fancy eða eitthvað þannig heldur bara það að þetta eru eiginlega 2 herbergi.. það eru 2 hurðir og 2 baðherbergi, auðvitað 2 rúm eins og alltaf…haha… og svo líka 2 sjónvörp og 2 skápar og 2 gluggar… og þetta skiptist alveg, er bara smá hurðagat sem hægt er að labba á milli herbergjanna. Maður er alveg ótrúlega sér hérna. En annars bara búinn að vera alveg ágætur dagur, maður kominn soldið nálægt Boston en stefnan á að fara þangað á Mánudag, þannig það er bara 1 dagur eftir sem fer í að keyra.

 

Annars bara spáir góðu veðri hérna um helgina, sól og blíðu en samt ekki of heitu, enda hitinn hérna í dag alveg ótrúlega nice, þannig það stefnir bara í góða helgi hérna hjá okkur.

Takið svo eftir að ég er búin að setja inn linka á “MYNDIR”.  Jeijei..allir að vera rosa glaðir. Ég búin að vera alveg svakalega svakalega dugleg í kvöld. Allir að muna að kommenta :) Svo við vitum að þið séuð ekki alveg búin að gleyma okkur :)

 

júlí 19, 2007

Fimmtudagur 19 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:58 pm

Við byrjuðum daginn á því að keyra yfir Missisippi fljót… það er svooo stórt.. en já.. keyrðum beinustu leið á Elvis Presley Blvd. Já já.. við fórum að skoða Graceland í dag :) Þetta var alveg ótrúleg upplifun!! Húsið sjálft ber ekki mikið á sér þegar það er séð að utan, en þegar maður kemur inn þá er það alveg ótrúlega stórt. Og maður fær ekki einu sinni að sjá það allt, því eftir hæðin er lokuð fyrir almennan aðgang, en þar er svefnherbergi Elvis og því hefur verið haldið alveg eins og það var þegar hann var á lífi. En núna í ágúst eru 30 ár frá því hann dó og ef hann væri á lífi í dag þá væri hann 72ja ára gamall.
Við tókum alveg slatta af myndum inni í húsinu en þær komu ekkert of vel út því það er alveg harðbannað að nota Flassið.

Lóðin sjálf er um 14 Ekrur og þar er Elvis, foreldrar hans og amma jörðuð. Þar er líka minningar”gröf” um tvíburabróður Elvis sem lést við fæðingu. En hann hét Jessie Garon Presley. Það var alveg sérstök stemmning að labba þarna framhjá.. fólk svona hvíslaði sín á milli og sagði sem minnst meðan það fór þarna framhjá.

Síðan fengum við líka að skoða bílasafnið hans… og váá hvað hann átti flotta bíla, meina hverjum langar ekki í bleikan eða fjólubláan bíl :) Og hann átti líka alveg slatta af mótorhjólum, jábbs.. slatta!!!

Síðan fengum við líka að skoða flugvélina hans sem heitir Lisa Marie, eftir dóttur hans.

Síðan var bara keyrt og keyrt… við komum við í Nashville í tölvubúð sem Hjalti vildi fara í til að kaupa tölvudót sem var svo ekki til ! Þannig við héldum bara áfram að keyra… og gaman að segja frá því að við loksins loksins fórum á nýjan veg… haha já ykkur finnst það kannski ekki merkilegt en þegar maður er búinn að keyra sama veginn í að verða 4 daga þá er það mjög gaman! Við erum semsé núna komin á veg sem heitir I 81 N. Og erum stödd svona á milli Knoxville og Bristol.

júlí 18, 2007

Miðvikudagur 18 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:21 pm

Það gerist nú ekki mikið hjá okkur þessa dagana… Við erum bara að keyra og keyra og keyra og keyra. Við fórum á I-Hop og fengum okkur að borða í dag og svo var bara keyrt meira. Hápunktar dagsins hjá okkur eru ekki margir… sáum jú risa risastóran kross og svo keyrðum við framhjá bæ sem heitir Checotah, en þar er búið að setja upp risastórt skilti sem segir að þetta sér “The Hometown of Carrie Underwood” American Idol 2005.

Enduðum svo hérna rétt fyrir utan Memphis.

 
Já þetta er bara stutt í dag, og já… haha auðvitað fannst dótið hans Hjalta.. annars já Ollý.. ég hefði örugglega skilið hann eftir. Það má kannski bæta því við að í gær þá töpuðum við 2 tímum, sem er ágætt því þá er munurinn hérna og heima orðinn 5 tímar. En í dag þá töpuðum við engum tíma, þannig að síðasti klukkutíminn hlýtur að koma á morgun. Byrjuðum í 4 tímum, fórum upp í 7 og núna alveg að koma aftur í 4… sem já þýðir að þessi ferð fer brátt að verða búin… komum heim eftir viku.

júlí 17, 2007

Þriðjudagur 17 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 11:29 pm

Vorum lögð af stað 10 mín yfir 8 í morgun…. og við keyrðum og keyrðum og keyrðum og keryðum… Gerðist nú ekki mikið hjá okkur í dag. Tókum okkur langt og gott stopp í hádeginu. Við byrjðum á því að kíkja smá í Walmart… Ásta keypti sér líka þessa fínu ferðatösku, enda var dótið hennar byrjað að flæða um allt. Keypti líka Seríu 2 af Beverly Hills.. Gleði gleði gleði. Svo versluðum við okkur bæði bara svona sittlítið af hvoru.  Við skelltum okkur svo á Pizza Hut, sem væri náttúrlega ekki frásögu færandi nema það að við fengum það frítt… jájá.. þau klúðruðu annarri pizzunni okkar, gleymdu að setja ost á hana, þannig við þurfum að bíða og bíða. Veit ekki hvort það hafi haft einhver áhrif að við stoppuðum á stað sem heitir Gallup og er við veg 666.

Við keyrðum líka aðeins inn á Route 66… en bara svona mest til að geta sagt ykkur við hefðum farið þangað :) Hehe. Vegurinn sem við erum að keyra heitir I-40 E og liggur svona eiginlega meðfram Route 66, allavega er annaðhvert skildi.. næsta exit to Historic Route 66. Jáá eins og þið sjáið þá var alveg ógeðslega gott veður en maður er eiginlega bara alveg hættur að kippa sér upp við það.

Svo var bara keyrt af stað.. og keyrt og keyrt og keyrt…

Erum núna í Amarillo í Texas.

júlí 16, 2007

Mánudagur 16 Júlí

Flokkað undir: USA — teamawesomeinamerica @ 5:08 am

Bless bless Los Angeles! Við kvöddum Vesturströndina í dag og héldum af stað í langt langt ferðalag aftur á austurströndina. Og já ég segi LAAANNNGT, því það var sko aðeins lengra en við ætluðum. Þannig er semsé mál með vexti… Við erum alltaf með einn poka í bílnum sem við setjum allskonar dót í…landakort, gps tækið, snarl fyrir bílinn og ýmislegt þannig. Í gærkvöldi hafði Ásta gert pokann tilbúinn en svo var annar poki sem var með rusli og segir Ásta við Hjalta.. þetta er ruslapoki. Í morgun þegar við vorum búin að setja allt dótið inn í bíl og sest þá er Hjalti með ruslapokann og Ásta segir við Hjalta… “Þetta er ruslapokinn… haha”, þarna er pokinn með dótinu ég tók hann”. Svo bara ekkert meir með það og við leggjum í hann. Þar sem að fyrra ““pásu”merkið”” er, þar stoppuðum við c.a. til að setja bensín á bílinn. Hjalti er eitthvað að basla við það, þannig Ásta fer að taka til í bílnum og setur allt í ruslapokann, svo var bara svo mikið rusl í bílnum að Ásta fór og var að spjalla við Hjalta þar sem hann var að dæla bensíni og taldi fyrir hann allar fljöskurnar sem höfðu verið á gólfinu, þær voru alveg 8 ef ekki 9. Og svo hendir hún pokanum í ruslið. Við skellum okkur svo á McDonalds sem var þarna hliðiná og fáum okkur morgunmat og svo var bara lagt í hann. Ásta var að keyra þennan dag og eftir að hafa keyrt í um klukkutíma frá bensínstöðinni þá er Hjalti svona eitthvað að dotta og sefur í alveg rúman klukkutíma… ekki nóg með það.. heldur klukkutíma eftir það.. þannig núna eru komnir um 3 tímar síðan við vorum á bensínstöðinni þá lýtur Hjalti á Ástu og segir

Hjalti:“hentiru pokanum”…

Ásta: “já..þetta var ruslapokinn og þú horfðir á mig henda honum”

Hjalti:”Ööö já.. ég held að vegabréfið mitt hafi verið í honum”

Ásta:”Ertu ekki að grínast”

Hjalti:”Nee held ekki”

Okey við stoppum bílinn, leitum að vegabréfinu sem finnst ekki og ákváðum að snúa ekki við því það er hægt að redda vegabréfi ef það týnist og þetta er bara of langt til baka og ekkert víst við myndum finna það.

Keyrum áfram í svona 15-20 mín…

Hjalti:”Öö ég held að síminn minn hafi verið í pokanum líka”

Ásta:”Ertu ekki að grínast”

Hjalti:”Nee held ekki”

Síminn finnst ekki og við snérum við… Þá vorum við komin þar sem seinna “”pásu”merkið”” er.

Síðan enduðum við í þessum bæ.. Williams..

 

Næsta síða »

Bloggaðu hjá WordPress.com.